Við mælum með að gestir bóki miða fyrir fram, en einnig er hægt að kaupa miða í móttöku Krauma með fyrirvara um framboð.
Við biðjum hópa stærri en 15 manns að senda tölvupóst á krauma@krauma.is. Vinsamlegast hafið samband við krauma@krauma.is vegna tilboða fyrir 15 manns eða fleiri.
Til að panta borð á veitingastaðnum er best að senda tölvupóst á krauma@krauma.is.
Krauma býður viðskiptavinum að kaupa léttvín, bjór og óáfenga drykki í náttúrulaugunum.
Hægt er að leigja handklæði, sundföt og baðsloppa.
Afpöntunarreglur
Með því að kaupa miða hjá Krauma samþykkir þú reglur okkar varðandi afpantanir.
Allar afpantanir verða að berast að minnsta kosti 48 klukkustundum fyrir heimsóknina til að fá fulla endurgreiðslu.
Ef hætt er við með meira en 48 klukkustunda fyrirvara býðst full endurgreiðsla.
Ef hætt er við með 24 til 48 klukkustunda fyrirvara býðst endurgreiðsla að virði 50% pöntunar.
Ekki er hægt að fá endurgreitt ef afpöntun berst með minna en 24 klukkustunda fyrirvara.
Gestum stendur til boða að fá fulla endurgreiðslu eða bóka nýjan tíma ef Krauma lokar vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Dæmi um slíkar aðstæður eru slæmt veður eða ófærð.
STAÐSETNING
Krauma er staðsett hjá Deildartunguhver, skammt frá Reykholti.
Krauma er í 97 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.
Komdu við í Krauma og upplifðu sjarma Vesturlands.